Mugison Tónleikar - 113 Reykjarvík - Grafarholt og Úlfarsárdalur - Guðríðarkirkja - 25 okt (fös) - k

Fri Oct 25 2024 at 08:00 pm

Guðríðarkirkja | Reykjavík

mugison
Publisher/Hostmugison
Mugison T\u00f3nleikar - 113 Reykjarv\u00edk - Grafarholt og \u00dalfars\u00e1rdalur - Gu\u00f0r\u00ed\u00f0arkirkja - 25 okt (f\u00f6s) - k
Advertisement
Ég hef bara einu sinni áður spilað í Guðríðarkirkju og það var í jarðaför - man að hljómurinn var rosalega fallegur - hlakka til að koma og hitta ykkur á heimavelli ❤️
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt - í sveitunum, bæjum og öllum hverfum - allstaðar er kirkja - svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt - einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Guðríðarkirkju.
Stuðkveðja, Mugison.
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.000 kr við hurð
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 6, 113 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring: