Advertisement
Verið velkomin morgunfund um húsnæðis- og kjaramál eldri borgara laugardaginn 28. september kl. 10:00 í Safnaðarheimili Laugarneskirkju. Fundurinn er hluti af málefnastarfi Samfylkingar um húsnæði og kjaramál og er haldinn í samstarfi við Landssamtökin 60+ í Samfylkingunni. Á meðal gesta verða Jóhann Páll Jóhannson þingmaður Samfylkingar, sem er formaður í stýrihópi flokksins um húsnæði og kjaramál, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður.Hvaða breytingar vilt þú í húsnæðis- og kjaramálum á Íslandi? Við viljum fá þig með í samtalið ?
* * *
Samfylkingin stendur fyrir samtali um húsnæði og kjaramál um land allt. Málefnastarf flokksins er nú með nýju sniði – heilbrigðismálin voru í forgrunni í fyrra, svo atvinna og samgöngur síðasta vetur og loks er komið að húsnæði og kjaramálum.
Fundirnir eru hugsaðir til að gefa fólki um land allt kost á að taka þátt í málefnastarfi Samfylkingar og leggja grunn að áherslum og forgangsröðun flokksins í veigamestu málaflokkum. Afraksturinn verður kynntur í væntanlegu útspili um húsnæði og kjaramál nú í haust.
* * *
Hér eru hlekkir á nýleg útspil Samfylkingar:
Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum – https://bit.ly/3y7dFPm
Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – https://bit.ly/3UE77zJ
Og hér má finna upplýsingar um næstu fundi: www.facebook.com/samfylkingin/events
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Laugarneskirkja, Við Kirkjuteig,Reykjavík, Iceland