Advertisement
Fimmtudaginn 20. mars heldur Mixtúra sköpunar- og upplýsingatækniver skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur menntabúðir í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Faghóp um skapandi leikskólastarf. Áhersla verður lögð á að kynna verkefni og hugmyndir sem tengjast tækni og sköpun í skóla- og frístundastarfi.Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í aðalhlutverki í menntabúðum. Öll geta boðið upp á kynningu en það er ekki skilyrði til þátttöku.
Markhópur: Allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í öllum sveitarfélögum, nemendur og kennarar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og aðrir áhugasamir um tækni og sköpun í skóla- og frístundastarfi
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Menntavísindasvið Háskóla Íslands, 105 Reykjavík, Iceland, ON Power, Stakkahlíð 1, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland