Advertisement
Málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið: Tíðni orða í HreiðrinuStaður: Edda, Arngrímsgötu 5, Reykjavík Stund: 28. janúar, kl. 16:00 – 17:30
Árið 1972 hófst fyrsta tilraunin til þess að nota tölvur til rannsókna á íslensku máli og markaði upphaf tölvustuddra tungumálarannsókna hér á landi.
Viðburðurinn er sá fyrsti í röð á vegum Máltækniseturs og CLARIN-IS sem haldin verður á næstu misserum og fjallar um sögu, upphaf og þróun íslenskrar máltækni. Markmiðið er að varpa ljósi á frumkvöðlaverkefni, fólkið á bak við þau og þann fræðilega og tæknilega jarðveg sem nútímalausnir byggja á.
Fundarstjóri er Steinþór Steingrímsson.
Dagskrá
16:00-16:30 Tíðni orða í Hreiðrinu: frumraun í íslenskri máltölvun
Stefán Ólafsson rekur sögu verkefnisins Tíðni orða í Hreiðrinu, frá aðdraganda og markmiðum, til forritunar á gataspjöldum, tæknilegra áskorana og niðurstaðna. Dregin verður upp mannleg og söguleg mynd af fyrstu tilraun til sjálfvirkrar úrvinnslu á íslensku ritmáli.
16:30-16:50 Hvað fylgdi í kjölfarið?
Sigrún Helgadóttir fjallar um nokkur verkefni sem voru unnin í Íslenskri málstöð og víðar í framhaldi af orðtíðniverkefninu fram undir aldamótin 2000, til dæmis gerð orðskiptiforrits, gerð biblíulykils og tölvuvinnslu íðorðasafna.
16:50-17:30 Boðið verður upp á kaffi og veitingar ásamt tækifæri til samræðna.
Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








