Advertisement
Þann 28. mars frá klukkan 09:00-15:00 stendur Félag fósturforeldra fyrir málþingi um málefni fósturforeldra á 2. hæð Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut 2.Fyrri hluta dags mun málþingið snúast um stöðu fósturfjölskyldna eins og hún birtist okkur í dag og skapa sjaldgæft tækifæri fyrir fósturforeldra og fagaðila til að fræðast um og ræða upplifanir af hversdagslegum áskorunum. Síðari hluta dags munum við svo horfa til framtíðar, hvers konar framþróunar megi vænta í stuðningi við fóstur, hvernig megi takast betur á við áskoranir og hvernig megi betur tryggja að góðri reynslu og starfsháttum sé deilt milli ólíkra landshluta. Í lok dags fáum við svo aðila í panel þar sem tækifæri verður til að ræða vel það sem komið hefur fram yfir daginn.
Við höfum undirbúið frábæra dagskrá og verða erindi frá fagfólki, fræðafólki, félagsstjórn, fyrrum formanni og auðvitað fósturforeldrum.
Skráning er opin til 26. mars og er þátttökugjald 4.500 kr fyrir félagsfólk en 14.500 kr fyrir aðra. Innifalið í verði er morgunmatur og hádegismatur ásamt kaffi, tei og kruðerí yfir daginn.
Hægt er finna vísan á skráningu á heimasíðu félagsins eða með því smella hér.
Við vonumst til að sjá sem flest á málþinginu
Stjórn Félags fósturforeldra
Dagskrá:
09:00 - Morgunverðarstund
Áður en málþingið hefst viljum við bjóða þátttakendum til notalegrar stundar þar sem hægt verður að njóta samveru og þess fína morgunverðar sem verður í boði. Við hvetjum öll að mæta tímanlega svo hægt sé að hefja málþingið vel nærð bæði líkamlega og félagslega.
09:30 - Setning
09:40 – Hvernig sjáum við stöðu fósturforeldra og hver er draumasýnin?
Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, fer yfir stöðu fósturforeldra eins og hún lítur við félaginu í dag samanborið við hvernig félagið vill sjá hana. Hvaða stoðir megi enn byggja eða styrkja og hvernig megi ryðja hindrunum úr vegi.
10:05 – Niðurstöður könnunar á meðal félagsmanna
Framkvæmdastjóri Félags fósturforeldra fer yfir niðurstöður könnunar sem félagið gerði nýlega meðal fósturforeldra um upplifun þeirra og styrkt var af Mennta- og barnamálaráðuneytinu.
10:25 – Kaffihlé
10:45 – Hvernig vegnar fósturbörnum?
Freydís Jóna Freysteinsdóttir, félagsráðgjafi, kynnir niðurstöður rannsóknar á stöðu uppkominna fósturbarna.
11:15 – Eru öll réttindi virt í fósturmálum?
Lögfræðingur Félags fósturforeldrar fer yfir réttindarstöðu og réttindarmál eins og þau blasa við fósturforeldrum.
11:40 – Sófaspjall formanna
Guðlaugur Kristmundsson, núverandi formaður Félags fósturforeldra, ræðir við Guðberg Grétarsson, fyrrum formann félagsins, um liðna tíma. Hagsmuni sem félagið þurfti að berjast fyrir og hvað hefur áunnist til þessa, samfélaginu til heilla.
12:00 – Hádegismatur
12:45 – Hvert er stefnt í fræðslu og stuðningi við fósturforeldra?
Guðbjörg Gréta Steinarsdóttir, teymisstjóri fósturteymis Barna- og fjölskyldustofu, segir frá stefnu BOFS í þeim efnum áður en opnað verður á umræður.
13:05 – Fósturmál eftir sameiningu barnaverndarþjónusta
Rakel Kemp, leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar hjá Skagafirði, segir frá reynslu barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands.
13:25 – Samstarf barnaverndarþjónustu og fósturforeldra
Arna Kristjánsdóttir deildarstjóri hjá Barnavernd Reykjavíkur segir frá þeim áskorunum sem Reykjavík hefur rekið sig á í að tryggja gott samstarf við fósturforeldra. Hvernig starfshættir hafi þróast til að tryggja sem besta niðurstöðu, hvernig fósturforeldrar upplifa samstarfið og hvaða úrbóta er enn þörf.
13:45 – Kaffihlé
14:00 – Sögur úr lífi fósturforeldra
Fósturforeldrar segja frá reynslu sinni af fóstri. Hvernig kerfið birtist þeim og hvernig umgjörðin gæti betur mætt þörfum fósturforeldra.
14:20 – Panel umræður
Aðilar sem koma að fósturmálum úr ólíkum áttum setjast í panel þar sem rætt verður um það efni sem komið hefur fram yfir daginn ásamt því sem tækifæri verður fyrir þátttakendur til að varpa fram spurningum og leita svara.
15:00 – Málþingi slitið
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hilton Hotel Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets