Advertisement
Við í Björkinni stöndum fyrir fræðslu- og listakvöldi á fæðingarheimili okkar í Síðumúla 10 fimmtudaginn 23.janúar kl.20:00. Við erum svo heppin að Þórdís Ágústsdóttir ljósmyndari kemur til okkar og heldur erindi um það sem okkur öllum finnst svo mikilvægt, að skrásetja fæðingu með ljósmyndun og áskoranir tengdar því. Við ætlum einnig að nota tækifærið og halda litla listasýningu á undurfallegum ljósmyndum sem við eignuðumst fyrir stutttu og viljum gefa fleirum tækifæri til að njóta.
Það verður heitt á könnunni og nægur tími í spurningar og spjall. Ókeypis inn en tekið á móti frjálsum framlögum upp í kostnað kt.471009-1050 bnr 544-04-762245
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Síðumúli 10, 108 Reykjavík, Iceland, Síðumúli 10, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland