Advertisement
Myndlist, markaðsstemming, ilmandi danskar eplaskífur og magnað aðventute.Titill sýningarinnar Ljósberi á vegi mínum – Ljósberar á mínum vegum sem lýkur með þessum virðiburði, vísar til upplifunar og minningar listakonunnar af því að hafa ekið fram á breiðu af ljósberum á Mýrdalsöræfum eina fagra, bjarta sumarnótt á þessu ári og jafnframt til verkanna sem eru á sýningunni.
Hér má finna margvísleg málverk unnin á striga sem og teikningar, vatnslitamyndir tímahylki/dagbækur frá vinnu og vinkonuferðum sem listakonan hefur farið í
undanfarin ár.
Hver litur ber í sér mismunandi tíðni ljóss.
Það að mála er því eins konar leikur með ljós.
Rétt eins verkefni sem snýst um að teikna og mála við vita um allt land er það líka.
Rétt eins og að finna uppljómun í flæðinu.
Rétt ein s og sköpunin sjálf.
Rétt eins og vináttan.
Rétt eins og að vinna á eigin forsendum að því sem er manni kært.
Í öllu þessu er þetta magnaða ljós.
Heilög frumgerð, ljósið.
Verkið sem prýðir forsíðu boðsins, er mynd af upplifun minni af fjallinu Snæfelli. Það fjall er heilagur staður í mínum huga en frá því skynja ég sterka tíðni. Frumkraftur og andagift er til staðar, eitthvað sem leiðir hugann hærra, í átt að draumkenndri fegurð. Snæfell er fyrir mér ljósberi, rétt eins og vitarnir sem ég
heimsótt i í sumar og málverkin sem ég vinn að, tímahylkin/ dagbækurnar sem geyma dýrmætt afrit af túlkun minni á stað og tíma og ljósinu sjálfu.
Hluti af andvirði hverrar myndar sem selst rennur til Bergsins Headspace.
https://www.bergid.is/
Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára með markmiðið að efla þátttöku og þekkingu ungmenna sem og að auka tengsl þeirra við samfélagið.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Islensk Grafik, Tryggvagata 17, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland