Advertisement
Living Closer er tveggja daga ráðstefna í Reykjavík, haldin dagana 10.-11. október 2024. Ráðstefnan er skipulögð af Kjarnasamfélagi Reykjavíkur, hópi áhugamanna um “co-housing”, en markmið hennar er að efla opinbera umræðu um stofnun samfélagsmiðaðs húsnæðis á Íslandi.Skipuleggjendur eru sannfærðir um að núverandi aðferð við að byggja íbúðarhúsnæði, og það hvernig húsnæði er byggt, þarfnist gagngerrar endurskoðunar. Því hafa sérfræðingar frá löndum þar sem kjarnasamfélög eiga sér ríka sögu, verið fengnir til að deila sinni sérþekkingu um málefnið.
Á fimmtudagskvöld klukkan 19.30 verður fyrirlestraröð í Iðnó sem opin er öllum, aðgangur er ókeypis.
Á föstudaginn verða auk þess vinnustofur þar sem boðsgestir á sviði stefnumótunar og húsnæðisuppbyggingar fá aðgang að ítarlegum upplýsingum og geta skipst á þekkingu.
Reykjavíkurborg er um þessar mundir að kanna úthlutun lóða fyrir samfélagsmiðað húsnæði. Fólk sem vill kanna hagkvæman húsnæðiskost sem býður upp á meiri nánd en vaninn er hér á landi er sérstaklega hvatt til að mæta, kynna sér málið á fimmtudagskvöldinu og skrifa sig á lista yfir áhugasama - einnig þau sem luma á lóðum eða stærri byggingum sem þau gætu hugsað sér að nýta til að deila samfélagi með öðrum.
Frítt inn!
-------------
Fundarstjóri er Anna Sigríður Jóhannsdóttir úr stjórn Grænni Byggðar
-------------
Viðburð byrjar kl. 19.30
Fyrirlestrar á fimmtudagskvöld eru:
Birger Kristoffersen, Chairman of the Association of co-housing in Denmark, Roskilde
▪️ Introduction development of Co-housing in Denmark,
▪️ Examples on how you as a citizen can start up a Co-housing group and what kind of professional advice is beneficial.
Robert Temel, researcher, architect and consultant on collaborative housing projects, Vienna
▪️ Collaborative housing in Vienna - how do these housing projects and access to land work and why does the city support them?
Kerstin Kärnekull, architect & activist, Stockholm
▪️ Senior cohousing – community and privacy
▪️ Swedish examples of cohousing for seniors
▪️ Lessons from Covid 19 – the importance of neighbours, common spaces and a social infrastructure.
▪️ Everyday life with both privacy and community, on our own terms.
Embla Vigfúsdóttir, designer and collaborator at Þykjó
▪️ Designing with children: How to bring children to the design process and give them voice? Why should we listen to them?
-------------
Kjarnasamfélag Reykjavíkur þakkar styrk úr Borgarsjóði Reykjavíkur.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland