La liberazione di Ruggiero dall' isola di Alcina - óperusýning

Sat Feb 22 2025 at 03:00 pm to 05:00 pm UTC+00:00

Neskirkja | Reykjavík

T\u00f3nlistardeild Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands
Publisher/HostTónlistardeild Listaháskóla Íslands
La liberazione  di Ruggiero dall'  isola di Alcina - \u00f3perus\u00fdning
Advertisement
Listaháskóli Íslands stendur fyrir evrópsku samstarfsverkefni í vetur, svokölluðu BIP námskeiði (Blended Intensive Project). Viðfangsefnið er barokkópera sem verður sett á svið í samvinnu við nokkra tónlistarháskóla á Norðurlöndum og á meginlandi Evrópu. Um er að ræða elstu varðveittu óperu eftir konu, La liberazione di Ruggiero dall' isola di Alcina eftir Francesca Caccini. Óperan var frumflutt í Flórens í febrúar 1625 og verða því nákvæmlega 400 ár liðin frá þeim viðburði. En sýningarnar verða kl. 15:00, 22. og 23. febrúar nk í Neskirkju í Reykjavík.
Verkefninu er ætlað að auka þekkingu og hæfni nemenda með fjölbreyttum hætti á því tímabili tónlistarsögunnar þegar óperuformið var að mótast. Að þjálfa túlkun og leikni og auka skilning á forminu með áherslu á þátt kvenna í mótun þess. Það er gert með því að leiða saman alþjóðlegan hóp nemenda á mismunandi stað í námi sínu, bæði langt komna söngvara og hljóðfæraleikara sem sérhæfa sig í túlkun barokktónlistar og nemendur sem eru í almennu tónlistarnámi og hafa áhuga á að takast á við verkefni sem þetta. Verkefnið snýst þar með jafnt um miðlun á jafningjagrundvelli og leiðsögn sérfræðinga. Stór þáttur í því er einnig að styrkja tengslanet iðkenda barokkflutnings með sögulega upplýstri nálgun. En slík verkefni byggjast gjarnan á langtímasamvinnu tónlistarfólks frá ólíkum löndum og jafnvel heimshornum.
Um 50 flytjendur, helmingur söngvarar og helmingur hljóðfæraleikarar, taka þátt í óperunni, auk þess leiðbeinendur og fjölmargir aðilar úr stoðsviðum þátttökuskólanna. Þeir eru auk Listaháskólans: Sibeliusarakademian í Helsinki, Konunglegi tónlistarháskólinn í Stokkhólmi, Konunglega konservatoríið í Den Haag. Einnig koma nemendur frá tónlistarháskólum í Bergen, Þrándheimi og Basel. Meðal gestakennara verða Kristina Hammarström, Päivi Kantola, Sólveig Thoroddsen, Sergio Coto, Dan Laurin, Anna Paradiso og Ólöf Ingólfsdóttir. Sigurður Halldórsson, prófessor við tónlistardeild LHÍ stýrir verkefninu og stjórnar flutningi.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Neskirkja, Hagatorg,Reykjavík, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

Floni 3 - \u00datg\u00e1fut\u00f3nleikar
Fri, 21 Feb, 2025 at 08:00 pm Floni 3 - Útgáfutónleikar

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum

Hot Fuzz - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 21 Feb, 2025 at 09:00 pm Hot Fuzz - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Valdimar \u00ed Gamla B\u00ed\u00f3
Fri, 21 Feb, 2025 at 09:00 pm Valdimar í Gamla Bíó

Gamla Bíó

Tarotn\u00e1mskei\u00f0
Sat, 22 Feb, 2025 at 10:00 am Tarotnámskeið

Skipholti 50b, 105 Reykjavík, Iceland

BUFFSMI\u00d0JA - LISTASMI\u00d0JUR \u00cd VETRARFR\u00cdINU
Sat, 22 Feb, 2025 at 11:00 am BUFFSMIÐJA - LISTASMIÐJUR Í VETRARFRÍINU

Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland

Living Goddess Workshop
Sat, 22 Feb, 2025 at 01:00 pm Living Goddess Workshop

Skipholt 50c, 105 Reykjavík, Iceland

Fiskidagst\u00f3nleikarnir 2025
Sat, 22 Feb, 2025 at 09:00 pm Fiskidagstónleikarnir 2025

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Ey\u00f0ib\u00fdli s\u00e1larinnar
Sun, 23 Feb, 2025 at 04:00 pm Eyðibýli sálarinnar

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

\u00cdsland - Tyrkland \ud83c\udfc0
Sun, 23 Feb, 2025 at 07:30 pm Ísland - Tyrkland 🏀

Laugardalshöll

After Hours - Svartir Sunnudagar
Sun, 23 Feb, 2025 at 09:00 pm After Hours - Svartir Sunnudagar

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

SPARIBAUKASMI\u00d0JA - LISTASMI\u00d0JUR \u00cd VETRARFR\u00cdINU
Mon, 24 Feb, 2025 at 11:00 am SPARIBAUKASMIÐJA - LISTASMIÐJUR Í VETRARFRÍINU

Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland

Vetrarfr\u00ed | Krotum saman!
Mon, 24 Feb, 2025 at 12:00 pm Vetrarfrí | Krotum saman!

Borgarbókasafn Úlfarsárdalur

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events