Kyrrðarkvöld með Kristínu Báru - AUKA VIÐBURÐUR

Mon Sep 30 2024 at 05:30 pm to 07:30 pm

Yoga Shala Reykjavík | Reykjavík

Yoga shala Reykjav\u00edk
Publisher/HostYoga shala Reykjavík
Kyrr\u00f0arkv\u00f6ld me\u00f0 Krist\u00ednu B\u00e1ru - AUKA VI\u00d0BUR\u00d0UR
Advertisement
Mánudaginn 30. september býður Kristín Bára upp á Kyrrðarkvöld í Yoga Shala. Kristín Bára hefur um árabil leitt Yoga Nidra í Yoga Shala Reykjavík og er mætt aftur með þessar ljúfu stundir sem gefa líkama og huga kærkomna hvíld.
Ásetningur kvöldsins er að upplifa hugarró, djúpa kyrrð & áreynslulausa streitulosun. Að falla frá hugsunum & gjörðum yfir í að finna & vera. Sleppa takinu & treysta flæðinu. Með blöndu af öndun, hugleiðslu, djúpslökun & tónheilun leiðir hún okkur í ferðalag þar sem við hlúum að sál & líkama & virkjum slakandi hluta taugakerfisins. Öndunin fær sérstaka athygli & með því að gefa gaum að þessum oft vanmetna þætti í ró & vellíðan, tökum við enn eitt skrefið í átt að meiri & dýpri kyrrð. Kristín Bára notast við ævaforna hugleiðslutækni sem hefur kraft til að taka okkur inn í djúpa slökun. Við förum inn í kyrrðina handan hugans þar sem endurheimt á sér stað.
Ekkert kyrrðarkvöld er fullkomnað án tónheilunar sem snertir alla okkar tilvist, alveg niður í smæstu frumur. Hugurinn gefur eftir, ónæmiskerfið styrkist & streitan minnkar. Fátt er betra en að leyfa sér að sleppa takinu á væntingum hugans & líða inn í djúpa slökun.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Helstu upplýsingar:
DAGSETNING: Mánudaginn 30. september 2024
TÍMASETNING: kl. 17:30-19:30 (120 min)
HVAR: Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7
ALMENNT VERÐ: 6.900 kr.
SKRÁNING: yogashala.is/kyrrdarkvold
Allar fyrirspurnir eru velkomnar á [email protected].
Kristín Bára er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands & hefur starfað við það á ýmsum vettvangi. Hjúkrun er í eðli sínu heildræn nálgun á einstaklinginn & er að hennar mati fullkomin blanda við jógísk fræði. Hún sótti sér kennararéttindi í Yoga Nidra árið 2019 hjá Amrit Yoga Institute undir leiðsögn Kamini Deasai & kláraði framhaldsnám árið 2021. Hún hefur lokið 200 klst jógakennaranámi frá Vikasa Yoga & er með kennararéttindi í Qigong. Hún hefur sótt sér þjálfun í gongspilun & tónheilun með kristalsskálum hjá Arnbjörgu & Saraswati Om. Síðastliðið sumar lauk hún eins árs námi í Compassionate Inquiry á vegum Dr. Gabor Maté & Sat Dharam Kaur.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring: