Þann 29. apríl fáum við spennandi heimsókn frá Íslandi, því forsvarkonur verkefnis Arion banka, “Konur fjárfestum – vertu með!”, heimsækja okkur. Þetta flotta verkefni hefur verið áberandi á Íslandi undanfarið ár, en markmið þess er að hvetja og efla konur til fjárfestinga. Við erum mjög stoltar af því að vera fyrsti áfangastaður verkefnisins á erlendri grundu.
Átaksverkefnið “Konur fjárfestum – vertu með!” fór formlega í loftið í ársbyrjun 2024 og hefur þegar vakið verðskuldaða athygli. Nýlega veittu samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu Arion banka verðlaun sem Menntafyrirtæki ársins m.a. vegna verkefnisins.
Á viðburðinum ætlar Snædís Ögn Flosadóttir forstöðumaður í sölu og þjónustu fagfjárfesta hjá Arion banka að fjalla um tilurð verkefnisins og fara yfir helstu atriði sem snúa að því að stíga sín fyrstu skref á fjármálamarkaði.
Boðið verður upp á léttar veitingar og við vekjum athygli á takmörkuðum miðafjölda. Miðasala fer fram hér: https://bit.ly/FKA-DK-KonurFjarfestum
Að kynningu lokinni verður tengslamyndun á rooftop barnum á Citizen M við Rådhuspladsen.
Hlökkum til að sjá ykkur!
,,Þátttaka á fjármálamarkaði er mikilvæg leið til að hafa áhrif í samfélaginu, samfara því að byggja upp eigin framtíð. Með því að fjárfesta tökum við þátt í þróun og uppbyggingu samfélagsins og sú þróun verður jafnari eftir því sem fleiri taka þátt." (tekið af heimasíðu Arion banka)
Fyrir hverjar er FKA-DK?
FKA-DK er samfélag kvenna sem styðja, hvetja og lyfta hvor annarri upp. Sama hvort þú kemur ein eða með vinkonu þá ertu hjartanlega velkomin á viðburði félagsins. Allir viðburðir félagsins eru opnir og við tökum glaðar á móti nýjum félagskonum.
Ýmsir kostir fylgja því að vera hluti af sterku tengslaneti líkt og FKA-DK. Til þess að vera gjaldgeng í félagið þarftu að vera búsett í Danmörku, virk í dönsku atvinnulífi eða við það að stíga inn í það. Ekkert árgjald er í félagið heldur greiða félagskonur aðeins fyrir aðgang að viðburðum sem þær sækja.
Event Venue & Nearby Stays
Jónshús, Øster Voldgade 12, 1350 København K, Danmark,Copenhagen, Copenhagen , Denmark