Advertisement
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Osló, býður alla velkomna á Jólahátíð 14. desember kl.14 í Bøler kirkju í Osló.Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bøler kirke, Bøler Kirke, 0691 Oslo, Norge, Oslo, Norway
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











