Advertisement
Jólablótsveisla Ásatrúarfélagsins 2025 verður haldin í sal Garðyrkjufélags Íslands við Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla) á vetrarsólstöðum sunnudaginn 21. desember næstkomandi.Húsið opnar kl. 19:00.
Minnum á að tryggja sér miða sem fyrst þar sem takmarkaður fjöldi sæta er í boði.
Miðasölu lýkur föstudaginn 19. des kl. 16:00.
Blótgjaldið er 7.000 kr fyrir félagsmenn og 1.000 kr fyrir börn 12 ára og yngri.
Almennt verð er 9.500 kr utan félags.
Til að tryggja sér miða þarf að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 861-8633 milli kl. 13-16 á virkum degi.
Tilkynna þarf fjölda fullorðina og barna og greiða svo annað hvort í gegnum posa á skrifstofu félagsins eða með millifærslu. Skrifstofan veitir upplýsingar um bankaupplýsingar fyrir millifærslu.
Einnig verður boðið upp á vegan veisluborð og verður fólk að láta vita hvort það vilji veganveislu þegar miði er pantaður.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Garðyrkjufélag Íslands, Síðumúli 1,Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











