Hver stund með þér - ástarljóð afa til ömmu

Fri, 14 Feb, 2025 at 08:00 pm UTC+00:00

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Hannesarholt
Publisher/HostHannesarholt
Hver stund me\u00f0 \u00fe\u00e9r - \u00e1starlj\u00f3\u00f0 afa til \u00f6mmu
Advertisement
Heimildarmyndin Hver stund með þér - ástarljóð afa til ömmu verður sýnd í Hannesarholti á Valentínusardaginn föstudaginn 14.febrúar kl 20. Strax á eftir bíósýningunni verða litlir tónleikar þar sem Anna María Björnsdóttir ætlar að frumflytja nokkur ný lög, samin við ljóð afa síns.
Anna María gaf út plötuna Hver stund með þér árið 2015 en þar samdi hún tónlist við ástarljóðin sem afi hennar Ólafur Björn Guðmundsson orti til ömmu hennar Elínar Maríusdóttur. Heimildarmyndin og platan Hver stund með þér eru því nátengd.
“Afi Óli orti ástarljóð til ömmu Ellu reglulega yfir þeirra ævi saman en enginn fékk að sjá þessi ljóð fyrr en þau voru orðin gömul. Ég samdi svo tónlistina eftir að þau bæði voru fallin frá. Afi hafði líka tekið upp töluvert af þöglum myndum og var því töluvert til af myndefni af lífi þeirra og ferðalögum um Ísland sem við notuðum í heimildarmyndinni. Myndin fjallar um ömmu og afa, ástarljóðin, tónlistina, ástina og hjónabandið en í henni er líka einstakt myndefni af íslenskri náttúru og ferðalögum ömmu og afa um Ísland."
Ljóðin voru samin við hin ýmsu tilefni en amma og afi voru gift í yfir 60 ár og fjalla þau öll um ást þeirra hvort á öðru. Það telst óvenjulegt að svo mörg ástarljóð séu samin til sömu manneskjunnar yfir heila ævi. Sú saga sem þau segja á sér vart hliðstæðu en sýnir jafnframt hvernig ást þeirra þróaðist yfir langan tíma.
Heimildarmyndin Hver stund með þér var frumsýnd á RIFF 2015. Hún var svo sýnd á RÚV og í Sjónvarpi Símans árið 2020.
Leikstjóri að heimildarmyndinni er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir og klippari er Ólafur Már Björnsson.
Anna María ætlar að spila og syngja ein á þessum tónleikum en Jesper Pedersen mun einnig spila nokkur lög með henni.
Það er tilvalið að fá smá rómantík og sumar í hjartað á Valentínusardaginn og skella sér á tónleikana í Hannesarholti.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

DIETRICH
Thu, 13 Feb, 2025 at 08:30 pm DIETRICH

Nasa Club In Reykjavik

Samflot \u00ed Grafarvogslaug
Thu, 13 Feb, 2025 at 08:30 pm Samflot í Grafarvogslaug

Dalhús 2, 112 Reykjavík, Iceland

The Bodyguard- Valent\u00ednusarpart\u00eds\u00fdning!
Fri, 14 Feb, 2025 at 09:00 pm The Bodyguard- Valentínusarpartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Bjartar sveiflur kynna: PROM 2025
Fri, 14 Feb, 2025 at 09:00 pm Bjartar sveiflur kynna: PROM 2025

Gamla Bíó

N\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bollasp\u00e1 me\u00f0 Sunnu \u00c1rna
Sat, 15 Feb, 2025 at 10:00 am Námskeið í bollaspá með Sunnu Árna

Skipholt 50d, 105 Reykjavík, Iceland

Chat and Read in Icelandic \/ Lesum og spj\u00f6llum \u00e1 \u00edslensku
Sat, 15 Feb, 2025 at 11:30 am Chat and Read in Icelandic / Lesum og spjöllum á íslensku

Borgarbókasafnið Grófinni / The Reykjavik City Library Grófin

Krakkakl\u00fabburinn Krummi: Hva\u00f0 ger\u00f0i \u00e9g \u00ed dag?
Sat, 15 Feb, 2025 at 02:00 pm Krakkaklúbburinn Krummi: Hvað gerði ég í dag?

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events