Advertisement
Heilandi möntrustund og gong slökun með Bjartey og Dísu.Sunnudaginn 1. desember klukkan 17 munu Bjartey og Dísa leiða ykkur inn í slakandi og heilandi möntrustund. Við munum koma saman, njóta samverunnar með því að kyrja fallegar möntrur og enda á góðri Gong slökun. Við þetta núllstillum við okkur og drögum athyglina innávið. Þessi stund er til að fylla hjörtu okkar af kærleik, innri frið og ást og hægja á öldum hugans.
Desember mánuður er mættur í allri sinni dýrð, tileinkaður samveru, glitrandi ljósum og hamingju. Þó að desember sé yfirleitt fullur af gleði þá getur hann líka vakið upp streitu og kvíða innra með okkur. Og þess vegna er mikilvægt að hlúa vel að sér í jólamánuðinum góða og jafnvel setja sér ásetning um að hafa kærleika og ró að leiðarljósi í jólaundirbúningum.
Komum saman og njótum fallegrar stundar umvafin möntrum og heilandi tónum.
Bjartey hefur starfað sem tónlistarkona síðan 2008 í hljómsveitinni Ylja, hún lauk krakkajóga námskeiði árið 2013, útskrifaðist sem kundalini jógakennari árið 2019 og einnig Jógakennaranámi Jógasetursins síðstliðin vetur. Eftir að Bjartey fór á möntrutónleika með Mirabai Ceiba árið 2014 var ekki aftur snúið, hún gjörsamlega kolféll fyrir áhrifum þess að kyrja möntrur. „Að kyrja færir okkur ró, það sefar hugann og hjálpar okkur að losa upp óæskileg hugsanamynstur sem valda okkur hugarangri. “Ég hef sjálf fundið að möntrur hafa mikinn heilunarmátt, þær hafa hjálpað mér í gegnum erfið áföll, að vera í núinu og lifa í kærleika og þakklæti.“
Arndís Árelía eða Dísa, eins og hún er alltaf kölluð er tónlistarkona og kennari. Dísa hefur starfað við tónlist síðusu 25 ár, þar sem hún hefur bæði sinnt eigin tónlistarverkefnum og miðlað tónlist til barna og fullorðinna í gegnum píanó og trommukennslu.Dísa byrjaði að syngja möntrur fyrir fimm árum síðan og fann fljótt hverslu magnaður og heilandi möntrusöngur er. Hún hefur gífurlega trú á heilunarmætti tónlistar og langar að miðla þeirri visku áfram til annarra í gegnum möntrusöng og tónlist. Dísa útskrifaðist úr Jógakennaranámi Jógasetursins árið 2022 og hefur einnig lokið Child Play jógakennaranámi, Yoga nidra kennaranámi og grunnnámskeiði í gong spili.
Við syngjum og sköpum saman í kærleika og gleði.
Almennt verð: 4.500 kr.
Verð fyrir iðkendur í Jógasetrinu: 2.500 kr.
Kaupa miða hér: https://www.abler.io/shop/jogasetrid
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Skipholt 50c, 105 Reykjavík, Iceland, Skipholt 50C, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland