Advertisement
Geðverndarfélagið boðar til Haustráðstefnu Solihull aðferðarinnar á Íslandi. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og styrkja starf Solihull á Íslandi, meðal félaga, sveitarfélaga, heilbrigðisstofnana og annarra sem styðjast við Solihull aðferðina í sínu starfi með ungum börnum og fjölskyldum þeirra.Solihull aðferðin er nú þegar notuð á nokkrum stöðum sem mun endurspeglast í þeim erindum sem flutt verða á ráðstefnunni.
Elvar Jónsson, verkefnastjori innleiðingar Farsældarlaganna í Mosfellsbæ, mun segja frá hvernig sveitarfélagið styðst við Solihull í sínu starfi.
Guðrún Ásta Bergsteinsdóttir og María Bjarnadóttir, félagsráðgjafar, munu greina frá Solihull aðferðinni á BUGL.
Rakel Þorsteinsdóttir, þroskaþjálfi hjá Keðjunni, þjónustu fyrir börn og fjölskyldur í Reykjavík, segir frá gagnsemi Solihull í vinnu með börnum.
Sigurþóra Bergsdóttir, forstöðukona Bergsins Headspace, greinir frá starfsemi úrræðisins og aðkomu Solihull aðferðarinnar.
Síðast, en ekki síst, mun stofnandi og stjórnandi Solihull Approach í Birmingham, dr. Hazel Douglas, opna vef með netnámskeiðum fyrir alla á Íslandi. Námskeiðsvefurinn er á slóðinni www.inourplace.co.uk og þar eru námskeið sem öll miða að því að auka geð- og tilfinningaheilbrigði, gæði sambanda og tengslamyndunar og auka þekkingu þátttakenda á starfsemi og þýðingu heilaþroska og hvernig sú þekking getur nýst til að kynnast, skilja og þekka börn betur.
*******************************************************
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, hvorki þarf að skrá sig né greiða inngang.
*******************************************************
SOLIHULL AÐFERÐIN er hugmyndafræði sem miðar að því að auka skilning og þekkingu heilbrigðisstarfsfólks, foreldra og aðstandenda á gæðum sambanda og tengslamyndunar hjá ungum börnum og fjölskyldum. Solihull aðferðin er ekki meðferðarúrræði heldur gefst fólki kostur á að læra um Solihull nálgunina á 2 daga grunnnámskeiði þar sem 2 vikur líða milli fyrri og seinni dags, m.a. vegna heimaverkefna. Bókin "Fyrstu fimm árin" er á lokametrunum í þýðingu og verður aðgengileg á íslensku áður en árið er á enda.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Gróska hugmyndahús, Sturlugata 6, 102 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland