Advertisement
Hafnarfjall Ultra er utanvegahlaup sem ræst verður í fyrsta sinn í Borgarnesi laugardaginn 28. júní 2025. Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi stendur að hlaupinu, en hópurinn hefur um árabil staðið fyrir Flandrasprettum, sem eru 5 km götuhlauparöð sem haldin er mánaðarlega yfir vetrarmánuðina.Þátttakendur í Hafnarfjall Ultra geta valið milli fjögurra vegalengda:
Hafnarfjall Tindur 14,4 km, 912 m hækkun
Hafnarfjall 7 tindar 22,7 km, 1.377 m hækkun
Hafnarfjall 7 tindar og dalir 33,0 km, 2.453 m hækkun
Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,3 km, 167 m hækkun
Þrjú lengri hlaupin eru ræst við Menntaskóla Borgarfjarðar, við hliðina á Nettóversluninni í Borgarnesi – og enda á sama stað. Fjölskylduhlaupið er hins vegar ræst á malarvegi við rætur Hafnarfjalls.
Dagskrá hlaupadags
Kl. 10:00 Start: Öll lengri hlaupin við Menntaskóla Borgarfjarðar (MB)
Kl. 10:30 Start: Fjölskylduhlaup við drykkjarstöð neðan við Hafnarfjall
Kl. 10:45 Von á fyrstu keppendum í fjölskylduhlaupinu í mark við drykkjarstöðina
Kl. 11:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall Tindur“ í mark við MB
Kl. 12:20 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar“ í mark við MB
Kl. 13:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar og dalir“ í mark við MB
Kl. 16:30 Marki lokað
Verðlaun í öllum vegalengdum verða afhent í MB þegar þrír fyrstu keppendur eru komnir í mark.
Þátttökugjald
Hafnarfjall Tindur 14,4 km - 7.000 ISK
Hafnarfjall 7 tindar 22,5 km - 9.000 ISK
Hafnarfjall 7 tindar og dalir 33,0 km - 11.000 ISK
Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,3 km - 2.000 ISK
Innifalið í þátttökugjaldi er:
Tímataka og númer (Tímataka verður með flögum (https://timataka.net))
Brautar- og öryggisgæsla
Drykkir og næring á drykkjarstöðvum og í marki
Salernisaðstaða við rásmark og endamark lengri hlaupanna
Verðlaun fyrir 3 efstu karla og konur
Afhending gagna
Hlaupagögn verða afhent í versluninni Fætur toga, Höfðabakka 3, Reykjavík fimmtudaginn 26. júní kl. 13:00-18:00 og í Menntaskóla Borgarfjarðar (Hjálmakletti) í Borgarnesi föstudaginn 27. júní kl. 13:00-18:00. Einnig verður opið fyrir afhendingu gagna í menntaskólanum á laugardagsmorgninum til kl. 9:30.
Tímamörk
Hafnarfjall 7 tindar og dalir (33,0 km): 6:30 klst.
Ekki eru tímamörk í öðrum hlaupum dagsins.
Drykkjarstöðvar
Fjórar drykkjarstöðvar verða á lengstu leiðinni, þrjár á þeirri næstlengstu og tvær í „Hafnarfjall Tindur“. Auk þess verður boðið upp á hressingu við endamark. Drykkjarstöðin á malarveginum við rætur Hafnarfjalls er sameiginleg öllum fjallaleiðunum, bæði snemma í hlaupunum (3,9 km) og á bakaleiðinni (10,5/18,8/29,1 km). Drykkjarstöðin í Tungudal/Grjóteyrardal (14 km) nýtist svo á báðum lengri fjallaleiðunum. Á drykkjarstöðvunum verður a.m.k. boðið upp á vatn og orkudrykk (FIXX kolvetnadrykk). Engin pappa- eða plastmál verða þar til staðar, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glös til að geta fengið drykki.
Brautarvarsla og merkingar
Allar leiðir verða merktar á áberandi hátt, auk þess sem hluti hlaupaleiðarinnar á fjöllunum fylgir merktri gönguleið. Brautarvarsla verður á mikilvægustu stöðum, svo sem þar sem leiðir skilja. Þá verða tímatökuhlið á toppum Hafnarfjalls og Tungukolls. Vegna öryggis og brautarvörslu er mikilvægt að allir hlauparar hlaupi í gegnum hliðin.
Gerðar verða sérstakar ráðstafanir til þess að hlauparar verði ekki í hættu vegna bílaumferðar á Borgarfjarðarbrúnni.
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum. Auk þess verða veitt vegleg útdráttarverðlaun.
ITRA/UTMB-stig
Lengsta hlaupið gefur tvo ITRA-punkta og 22,5 km hlaupið gefur einn ITRA-punkt. Öll hlaupin gefa ITRA-stig.
Varúð
Gæta þarf sérstakrar varúðar vegna umferðar þegar hlaupið er yfir Borgarfjarðarbrúna.
Hlauparar á leið upp Hafnarfjall þurfa að víkja vel til hægri þegar þeir mæta hlaupurum á niðurleið.
Hlaupin henta ekki lofthræddum.
Aðalstyrktaraðili
Verslunin Fætur toga er aðalstyrktaraðili Hafnarfjalls Ultra. Við skráningu gefst keppendum kostur á að kaupa öryggistösku frá versluninni með góðum afslætti, en í töskunni er allur helsti öryggisbúnaður fyrir fjallahlaup, þ.m.t. álteppi og öryggisflauta ( https://faeturtoga.is/vara/safety-kit-oryggistaska/ ).
Nánari upplýsingar
Facebooksíða hlaupsins er https://www.facebook.com/profile.php?id=61569544243979.
Enn nánari upplýsingar:
Kristinn Óskar Sigmundsson, [email protected], 852 2203
Stefán Gíslason, [email protected], 862 0538
netskraning.is
https://netskraning.is/hafnarfjallultra
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarnes, Iceland, Borgarbraut 21, 310 Borgarbyggð, Ísland,Borgarnes, Reykjavík, Iceland