Advertisement
Leiðbeinandi: Steinunn MagnúsdóttirStaðsetning: Lótushús Garðatorgi, miðbæ Garðabæjar
Um námskeiðið
Margir óttast hið óþekkta og þar sem lífið virðist oft hlaðið óvæntum uppákomum, sem við eigum jafnvel erfitt með að skilja, getum við auðveldlega fyllst kvíða og óöryggi. Þegar skilningur okkar á leyndardómum lífsins vex, hverfur hins vegar dulúðin, við sjáum atburðarás lífsins í skýrara ljósi og eigum því auðveldara með að taka farsælar ákvarðanir.
En hvernig getum við séð leyndardóminn sem liggur að baki því sýnilega og augljósa og lært að skilja betur eitt stærsta lögmál heimsins?
Steinunn Magnúsdóttir er búsett í Bologna á Ítalíu og er ein af þeim sem heldur utan um starf Brahma Kumaris hugleiðslumiðstöðvanna þar í landi. Steinunn hefur iðkað og kennt Raja Yoga hugleiðslu í tæp 20 ár og er mörgum vinum Lótushúss að góðu kunn en hún hefur haldið fjölmörg áhugaverð og vinsæl námskeið á Íslandi.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir en skráning er nauðsynleg og fer fram hér: https://lotushus.is/dagskra-skraning/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Garðatorg, Garðatorg 3, 210 Garðabær, Ísland, Kopavogur, Iceland