Advertisement
Í tilefni þess að hljómsveitin okkar fagnar 10 ára starfsafmæli OG helmingur hljómsveitarinnar (hún Elísa) á afmæli þennan dásamlega dag þá ætlum við að slá til veislu og halda brjálæðislega skemmtilega afmælistónleika.Við munum taka alla gömlu og nýju slagarana og dónajólalögin koma öllum í réttu jólasköpin.
Það eru einungis 50 sæti á cafe Rósenberg og til þess að panta miða og tryggja sér sæti þá sendið þið okkur skilaboð hér á fb eða tölvupóst ([email protected]) og við sendum þér upplýsingar svo þú getur millifært fyrir miðanum, þá ertu orðin alveg safe og búin að tryggja þér miða og sæti á skemmtilegustu tónleika lífs þíns.
Tónleikarnir verða þann 15 nóvember
kl 20:00 á cafe Rósenberg
Miðaverð 3.000
Það er auðvitað bar á staðnum svo allir geti fengið sér veigar að sínu skapi. Hver veit nema við bjóðum upp á huggulega afmælistertu!
Hlökkum til að sjá þig!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Rósenberg, Reykjavík, Iceland