Advertisement
Bresk spennumynd í stíl „noir“ myndanna í leikstjórn Basil Dearden.Myndin segir frá virtum lögfræðingi sem er í góðu hjónabandi með konu en einnig kirfilega fastur í skápnum svokallaða. Hann ákveður að taka upp hanskann fyrir samkynhneigða karlmenn og skera upp herör gegn ítrekuðum fjárkúgunum og ofbeldi sem beint er gegn samkynhneigðum karlmönnum í skjóli laga gegn samkynhneigð.
Slík lög voru í fullu gildi í Bretlandi og víðar þegar kvikmyndin kom út og var kvikmyndagerðarfólkinu í mun að gagnrýna þátttöku ríkisvalds í ofbeldi gegn fólki í viðkvæmri stöðu.
Kvikmyndin er sú fyrsta í Bretlandi til að gagnrýna þetta ómannúðlega fyrirkomulag og hlaut þegar hún kom út mikið lof fyrir áræðni og þor og telst í dag til klassískra kvikmynda breskrar kvikmyndasögu.
Hinsegin bíó, sunnudaginn 24. nóvember kl 19:30.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets