Advertisement
Bárðargata - JeppaferðHér er á ferðinni ein af skemmtilegri og fáfarnari jeppaleiðum landsins sem liggur um afar hrjóstrugt og stórbrotið landslag undir vestanverðum Vatnajökli, frá Svarthöfða við suðurenda Vonarskarðs til Jökulheima. Við tökumst á við brattar brekkur, óbrúaðar jökulár og þræðum þrönga og á stundum nær ósýnilega slóða með viðkomu í Hamarskrika þar sem stórbrotið útsýni bíður okkar ef veður og skyggni leyfir.
Á sunnudeginum bíður okkar svo ekki síður skemmtilegt ferðalag frá Jökulheimum yfir Tungnaá á Gnapavaði ef fært er, yfir á Breiðbak eða um Langasjó niður að Sveinstindi þar sem við höfum um nokkra valmöguleika að ræða; Skælinga um Blautuver, Faxasund eða Faxafit meðfram Tungnaá sem er einnig afar fáfarin og stórbrotin leið.
Fararstjóri er Sveinn Sigurður Kjartansson
Nánari upplýsingar og skráning á:
https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/jeppaferdir/vidburdur/6513/bardargata
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland, Katrínartún 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland