Advertisement
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna verður haldinn hátíðlegur í Jónshúsi föstudaginn 6. mars næstkomandi. Líkt og undanfarin ár verður viðburðurinn haldinn hátíðlegur í samstarfi við kvennakórinn Eyju.
Gestafyrirlesarar að þessu sinni eru Elinóra Guðmundsdóttir stofnandi og ritstýra útgáfufyrirtæksisins Via og ein þriggja ritstjóra bókarinnar Hennar rödd og Kaja Sigvalda ljósmyndari bókarinnar. Þær munu segja frá gerð bókarinnar og útgáfu, ljósmyndaferlinu og ræða kvenréttindabaráttuna, inngildingu og það að vera af erlendum uppruna.
Hennar Rödd er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og vann um daginn Íslensku bókahönnunarverðlaunin í flokki heildarhönnun bóka.
Örfáar bækur verða til sölu á viðburðinum, á 600 kr.
Kvennakórinn Eyja mun sjá um veitingar og hægt verður að kaupa bæði mat og drykkjarföng til styrktar kórastarfi þeirra.
Stefnt er á að halda svo fjörinu áfram í góðu glensi að viðburði loknum, enda mikilvægt að styrkja tengslanetið og hafa gaman saman.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Jónshús, Øster Voldgade 12, 1350 København K, Danmark, Copenhagen , Denmark
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








![Ankerstjerne [support: Alexander Oscar] \/\/ Poolen (UDSOLGT)](https://cdn-ip.allevents.in/s/rs:fill:500:250/g:sm/sh:100/aHR0cHM6Ly9jZG4tYXouYWxsZXZlbnRzLmluL2V2ZW50czcvYmFubmVycy9lNzZlMzNiMzRhZDJmNWVhNzBiMzQyNmM4YjJlOWQ5YjZhNWQ0N2Q4ZDBjYzRkZjU5ZGZlNTIwNDQ4ZmI1YWJmLXJpbWctdzEyMDAtaDYyOC1kY2VkZWFkOS1nbWlyP3Y9MTc3MTU3MDc5MA.avif)


