Advertisement
Aðalfundur 2024.Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis fer fram miðvikudaginn 27. nóvember á Garðavöllum kl. 18:00.
Golfklúbburinn Leynir býður fundarmönnum upp á súpu í upphafi fundar.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
3. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
4. Lagðar fram tillögur um breytingu laga og reglugerða. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði. Engar breytingar hafa verið boðaðar.
5. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta starfstímabils ásamt tillögum um félagsgjöld. Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
6. Kosning formanns, stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, auk eins til vara skv. 6. gr.
8. Önnur mál - Skipulagsmál og 60 ára afmæli Leynis 2025.
Gögn fyrir fundinn verða sett inn á heimasíðu klúbbsins að morgni 27. nóvember.
Væri gaman að sjá ykkur sem flest.
Kær kveðja, stjórn GL.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Garðavölum, Reykjavík, Iceland