Advertisement
Íslensk öskudagsgleði verður í sænsku Margareta kirkjunni í Osló þann 8.febrúar. Íslenska kirkjan í Noregi og Íslendingafélagið í Osló vinna saman að þessum viðburði.
Fjölskylduguðþjónustan hefst kl 15:00 í kirkjunni. Séra Lilja Kristín verður í öskudagsbúning og verður með öskudagssprell á staðnum.
Íslendingafélagið í Osló sér um öskudagsballið á eftir.
Dagskráin er fjörug, fjölbreytt og allskonar skemmtilegt í boði eins og t.d nammileit, limbó, öskudagspokar, öskudagsdiskó og margt fleira.
Við fögnum því að sjá ykkur í búningum og að sjálfsögðu verður öskudagsnammi í boði fyrir alla sem vilja.
Pálínuboð í umsjón Íslendingafélagsins í Osló. Við hvetjum ykkur til að taka með kruðerí á borðið. ☕️
Sjáumst í gleðinni.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Svenska kyrkan i Oslo, Hammersborgstorg 8B,Oslo, Norway
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











